Akstursþjálfun hjá Daimler í Þýskalandi – Febrúar 2022

Ökuland

Ökuland og EvoBus bjóða upp á akstursþjálfun á sérhönnuðu æfingasvæði í Þýskalandi í febrúar n.k. fyrir ökumenn hópferðabíla og aðra áhugasama. 

EvoBus er dótturfyrirtæki Daimler samstæðunnar og framleiða m.a. Mercedes Benz og Setra hópferðabíla. EvoBus er með stærstu hópferðabíla framleiðendum í Evrópu og leiðandi á heimsvísu.  Auk akstursþjálfunar verður ekið um í suðurhluta Þýskalands, t.d. í nágrenni við Svartaskóg og Heidelberg. Gist verður í miðbæ borganna Stuttgart og Koblenz. Í Stuttgart verður Mercedes safnið skoðað en þar eru höfuðstöðvar Daimler og Koblenz er þekkt fyrir “Þýska hornið”, þ.e. þar sem árnar Mosel og Rín mætast. 

Samgöngustofa metur námskeiðið til endurmenntunar bílstjóra sem sérhæft valnámskeið.

Skráning og meiri upplýsingar HÉR

Sendu okkur skilaboð