Ný námskrá fyrir endurmenntun atvinnubílstjóra hefur verið samþykkt og verður birt 18. febrúar 2025.
Helstu breytingar:
- Námskeiðum er nú skipt í þrjá hluta; Umhverfi – Lög og reglur & Öryggi og nú þarf að taka að lágmarki eitt námskeið úr hverjum hluta. Hin tvö eru valfrjáls og mega vera úr hvaða hluta sem er
- Ekki er lengur um að ræða kjarna, valkjarna og val.
- Nú er skylda að eitt af þeim fimm námskeiðum sem bílstjórar taka innihaldi verklegan hluta, til dæmis akstursöryggisnámskeið, verklegt vistakstursnámskeið, námskeið í vetrarakstri, verklega skyndihjálp og svo mætti lengi telja.
Bílstjórar sem hafa lokið fimm námskeiðum samkvæmt eldra fyrirkomulagi hafa tíma til 1. júní 2025 til að endurnýja ökuskírteinið með 95 hjá sýslumanni.
Athugið að þau sem hafa nú þegar lokið verklegum námskeiðum uppfylla þau skilyrði sem eru sett um verklega hlutann.
Bílstjórar geta skoðað stöðu sinna námskeiða á https://askur.samgongustofa.is
Athugið að ef innskráning tekst ekki eru líkur á að engin námskeið séu í gildi.
Nánari upplýsingar má m.a. finna á upplýsingasíðu fyrir atvinnubílstjóra: https://island.is/atvinnubilstjorar
Sjá nýja námskrá á vef Samgöngustofu.
Ökuland veitir og nánari upplýsingar, okuland@okuland.is