UPPSELT ER Í FERÐINA

 NÆSTA FERÐ FYRIR FLOKK D ER ÁÆTLUÐ HAUSTIÐ 2026 

 TRYGGÐU ÞÉR SÆTI  > FORSKRÁNING HÉR 

 

Akstursþjálfun hjá Daimler Buses í Þýskalandi 

 

Ökuland og Daimler Buses bjóða upp á akstursöryggisnámskeið á sérhönnuðu æfingasvæði í Þýskalandi fyrir ökumenn og eigendur hópferðabíla sem og aðra áhugasama.  

Daimler Buses er dótturfyrirtæki Daimler samstæðunnar og framleiða m.a. Mercedes Benz og Setra hópferðabíla. Daimler Buses er með stærstu hópferðabíla framleiðendum í Evrópu og leiðandi á heimsvísu.

Auk akstursþjálfunar verður ekið um Rínardalinn og nágrenni. Gist verður í bænum Rüdesheim sem mörgum er að góðu kunnur, í borginni Koblenz sem þekkt er fyrir „Þýska hornið“, þ.e. þar sem árnar Mosel og Rín mætast og í hinni sögufrægu borg Wiesbaden.

Samgöngustofa viðurkennir námskeiðið til endurmenntunar bílstjóra.

19. apríl 2026 – Sunnudagur

  • Flogið til Frankfurt með Icelandair að morgni og lent þar um hádegisbil.

  • Ekið til Rüdesheim, deginum og kvöldinu varið þar.

  • Gist í Rüdesheim. 

20. apríl 2026 – Mánudagur

  • Ekið um Rínardalinn.

  • Komið til Koblenz um miðjan dag.

  • Frjáls tími – hægt er njóta borgarinnar, skoða þýska hornið og fara með kláf yfir ánna Rín.

  • Gist í Koblenz.

21.apríl 2026 – Þriðjudagur

  • Námskeiðsdagur – ekið til bæjarins Wüschheim.

  • Akstursöryggisnámskeið – sjá dagskrá hér að neðan. 

  • Ekið til borgarinnar Wiesbaden eftir námskeið. 

  • Gist í Wiesbaden.

22. apríl 2026 – Miðvikudagur

  • Ekið frá Wiesbaden til Frankfurt.

  • Þaðan verður flogið heim um hádegisbil og lent þar seinnipartinn. 

Fararstjóri og túlkur á námskeiðinu verður Guðni Sveinn Theodórsson sem veitir nánari upplýsingar í netfangi gudni@okuland.is / sími 583 4040. 

 

Skráning HÉR

Um námskeiðið

Markmið:

Að aka án þess að stofna sér í hættu.

Á námskeiðinu upplifir þú akstur við viðsjárverðar aðstæður á hópferðabíl og lærir hvernig meta skal

aðstæður rétt og af öryggi.

 

Dagskrá

– Upphaf námskeiðs.

– Ekið um svæðið og það sýnt þátttakendum.

–  Farið yfir aðstöðu ökumanns við stýri og leiðbeint um stillingar á sæti, speglum og stjórntækjum.

– Svigæfingar og æfingar  í akstri afturábak.

– Nauðhemlunaræfingar og samanburður á stöðvunarvegalengd.

– Hádegisverður.

– Æfingar í akstri niður brekku í hálku.

– Undir- og yfirstýring, verklegar æfingar.

– Samantekt um þjálfunina. 

– Námskeiðslok.

Myndband frá akstursöryggisnámskeiði í Þýskalandi fyrir flokk D

Námskeiðsstaður

Fahr-Test-und Trainingsanlagen GmbH

L 226

55481 Reckerhausen (bei Kastellaun)

 

Kröfur um ökuréttindi: Ökuskírteini fyrir flokk D

Lengd námskeiðs: 7 klukkustundir.

 

Verð á mann:

Í tvíbýli með námskeiði: 249.000 kr.

Innifalið er flug fram og til baka, flugvallarskattar, námskeiðsgjald fyrir akstursþjálfun, ferðir milli staða, leiðsögn og gisting í þrjár nætur með morgunmat. 

Aukagjald fyrir einbýli: 20.000. kr.

Lágmarksfjöldi þátttakenda er 12

Kostnað af ferðinni er að hluta til hægt að sækja í starfsmenntasjóði stéttarfélaga, verkalýðsfélaga og fræðslusjóði atvinnurekanda.

Ferðaskilmálar Ökulands

Skráning í ferð

Skráning

Á flugvellinum í Frankfurt. Glaðbeittur hópur atvinnubílstjóra á heimleið, reynslunni ríkari.

Benzinn tekinn til kostanna.

Uwe Beyer leggur línurnar.

Bæjarröltið.

Atvinnubílstjórar í góðum gír.

Sáttir með daginn.

Sendu okkur skilaboð