„Eins og áður var tilkynnt tók ný námskrá fyrir endurmenntun atvinnubílstjóra gildi þann 18. febrúar síðastliðinn. Með henni urðu þær breytingar að nú er skylda fyrir atvinnubílstjóra að taka a.m.k. eitt námskeið sem inniheldur verklegan þátt.
Frestur var gefinn til 1. júní fyrir þá bílstjóra sem höfðu hafið endurmenntun til að endurnýja skírteini sín með atvinnuréttindum án þess að taka verklegt námskeið. Atvinnubílstjórar fengu hnipp á island.is með þessum upplýsingum sama dag og námskráin tók gildi.
Nú er sá frestur liðinn og allir atvinnubílstjórar þurfa því að hafa tekið verklegt námskeið til að geta endurnýjað skírteini sín með atvinnuréttindum (tákntölu 95). Ekki verða gefnar undanþágur frá því eða frekari frestir umfram það sem þegar hefur verið. Það er því mikilvægt að námskeiðshaldarar upplýsi sína nemendur um þessar kröfur og leiðbeini þeim við val á námskeiðum til samræmis við þær.
Mikilvægt er að taka fram að til þess að fá 95 tákntöluna inn á ökuskírteini fyrir þau sem hafa þau ekki fyrir á sínum skírteinum, þarf að endurnýja ökuskírteini hjá sýslumanni, óháð fyrri gildistíma.
Við bendum á að alltaf er hægt að senda okkur erindi á okurettindi@samgongustofa.is ef spurningar vakna, eins minnum við á símatímann okkar milli 9 og 11 virka daga, s. 480-6095.“