Ökuland sem er bæði í senn ökuskóli og ferðaskrifstofa, var stofnað árið 2005 af Guðna Sveini Theodórssyni, ökukennara og atvinnubílstjóra og Dýrfinnu Sigurjónsdóttur, öku- og grunnskólakennara. Samanlagt hafa þau áratuga reynslu af akstri og kennslu. Auk þeirra kemur að Ökulandi öflugt teymi fólks með víðtæka starfsreynslu og menntun.
Ökuland sérhæfir sig í endurmenntun atvinnubílstjóra og akstursþjálfun atvinnubílstjóra, hérlendis sem erlendis, og er viðkenndur námskeiðshaldari af Samgöngustofu. Ökuland hefur um árabil boðið upp á náms- og skemmtiferðir fyrir atvinnubílstjóra til Þýskalands. Ökuland er staðsett á Selfossi.