BE-Kerrupróf

  • BE-próf veitir rétt til að stjórna bifreið í B-flokki með eftirvagn/tengitæki sem er ekki meira en 3500 kg. að heildarþyngd. Dæmi: fellihýsi, hjólhýsi og hestakerrur sem falla undir þessi mörk/þyngd. Bent er á að það kemur fram í skráningarskírteini eða skoðunarvottorði bifreiðar hve þungan vagn hún má draga. Skráningarskírteini ökutækja má skoða á á vef Samgöngustofu/Mitt svæði.
  • Fyrsta skrefið, auk þess að skrá sig hjá Ökulandi,  er að sækja um ökuskírteini/nýjan ökuréttindaflokk hjá sýslumanni.  Almennt þarf ekki að leggja fram læknisvottorð þegar sótt er um BE-réttindi en á því eru þó undantekningar og ef umsækjandi notar gleraugu/linsur þarf að skila inn sjónvottorði frá lækni.
  • Próftökugjald greiðist til Frumherja þegar farið er í verklegt ökupróf.
  • Ekki þarf að taka bóklegt ökupróf til BE-réttinda.
  • Námskeiðsgjald er innheimt með kröfu í heimabanka.  Reikningur er sendur í tölvupósti. Einstaklingum er bent á möguleika á námsstyrk stéttarfélaga og fyrirtækjum á styrki úr starfsmenntasjóðum.

Lengd: 4 verklegir ökutímar
Verð: 85.000 kr.
Staðsetning: Selfoss
Kennari: Guðni Sveinn Theodórsson
Skráning

Önnur námskeið

Aksturshæfnispróf/Endurtökupróf

Einnig þarf að sækja um endurn. ökuskírteinis hjá sýslumanni og skila inn læknisvottorði með umsókn

Sjá meira

Online course for code 95

Online course for code 95

Sjá meira

Professional Driving License(in English) – ONLINE COURSE

The theoretical part is online. You decide when it best suits you to study.

Sjá meira

Sendu okkur skilaboð