Þann 1. maí varð alvaralegur öryggisbrestur hjá Instructure, sem rekur námsumsjónarkerfið Canvas og Ökuland notar fyrir netnámskeiðs sín.
Brotist var inn í hluta kerfisins og samkvæmt upplýsingum frá Instructure tókst óviðkomandi að ná upplýsingum um nöfn og netföng nemenda. Engar vísbendingar eru um að viðkvæm gögn og fjárhagsupplýsingar hafi komist í hendur þessara aðila.
Instructure hefur tilkynnt að búið sé að uppfæra og loka fyrir öryggisbrestinn, en Ökuland biður nemendur um að hafa varann á sér gagnvart óvenjulegum tölvupóstum sem kunna að berast
Við biðjumst velvirðingar á þeim óþægindum sem þetta kann að hafa valdið.